Jóla álfar
Margir Íslendingar trúa því að til séu ósýnilegar verur sem búa í hólum eða klettum. Þessi trú tengist virðingu fyrir náttúrunni og óskrifuðum reglum meðal landsmanna um að trufla ekki heimkynni þeirra. Til að mynda hafa alls konar óútskýrð óhöpp orðið til að stöðva vegagerð eða húsbyggingar. Auk þess trúa margir að álfar og huldufólk flytji búferlum á nýársnótt og láta því ljós loga alla nóttina eða hafa góðgæti á disk ef huliðsverurnar skyldu eiga leið á.















