
Velkomin til EMIL&LÍNA - Born in Iceland.
Við höfum skapað vörumerkið EMIL&LÍNA í samvinnu fjölskyldu okkar og samstarfsfólk og viljum með því endurvekja íslenska afleifð með fallegu handverki og góðu vöruúrvali fyrir þig og barnið þitt.
Ævintýrið um Emil&Línu hófst í fæðingarorlofi með öðru barni okkar og þá varð til hugmyndum að þróa barnafatnað sem endurspeglaði töfra barnæskunnar, uppvaxtaráranna í íslenskri náttúru þar sem ilmur af nýslegnu grasi og kvak mófuglanna gladdi barnssálina.
Amma prjónaði og afi sagði sögur milli þess sem við hlupum frjáls um móana og horfðum á lömbin fæðast.
Undir áhrifum þessara bernskuminninga varð vörumerkið okkar að veruleika, sannlega borið og barnfætt á Íslandi, tímalaus hönnun sem á sér rætur í hefðinni en hentar nútímafjölskyldunni. Takk frir að taka þátt í ævintýrinu með okkur og við vonum að EMIL&LÍNA færi barnslega gleði og einlægni inn á heimilið ykkar
TEYMIÐ
Hjá EMIL&LÍNU starfar lítill hópur önnuða og foreldra sem enn rækta barnið í brjósti sér og trúir því að æskan eigi að vera með okkur áfram inn í fullorðinsárin, við látum okkur dreyma og leikum okkur með töfranna.

Í notalegu vinnustofunni okkar á Íslandi hönnum við hverja flík af alúð, undir áhrifum bernskuminninga, þjóðsagna, óveðurs og öflugrar náttúru sem við þekkjum svo vel. Við skissum, teiknum og veljum mýksta og besta efnið með litlu ærslabelgjunum okkar, - börnunum okkar yndislegu. Hvert einasta verkerfni er ævintýri sem hefst með sögu, kannski er það litir norðurljósanna, tilfinningin þegar mosinn kitlar litlar tásur eða blíður fuglasöngurinn sem boðar okkur vorið.

Allt þetta verður svo að fallegum flíkum sem eru mjúkar og þægilegar til að upplifa fleiri ævintýri.

Við trúum á hönnun þar sem hvert smáatriði er hugsað til enda og sjálfbærni er í hávegum höfð. Við viljum búa til þægilegan fatnað fyrir börn við alls konar aðstæður, þar sem þau lifa lífinu, hlæja og upgötva heiminn, klifrandi í brekku eða kúrandi með bók.
Frá vinnustofu okkar með kærri kveðju heim til ykkar, takk fyrir að taka þátt í ævintýrinu með okkur.
