Víkingar
Hrafna-Flóki var víkingur sem sigldi með þrjá hrafna í leit að nýju landi. Þriðji hrafninn leiddi hann til Íslands þar sem hann settist að. Veturinn reyndist erfiður og Flóki nefndi landið Ísland í reiði sinni. En hrafnarnir þrifust vel í harðri náttúru landsins og urðu staðfuglar á Íslandi.


















