Ég heiti Andrea og ólst upp í Hafnarfirði þar sem ég fékk áhuga á handavinnu strax í æsku. Móðir mín kenndi mér að prjóna þegar ég var aðeins 9 ára og síðan þá hefur prjónaskapur verið ómissandi hluti af lífi mínu. Ég starfaði sem leikskólakennari í 25 ár og naut þess að vera í kringum börnin og skapa hlýlegt og skapandi umhverfi fyrir þau. Þegar ég missti heilsuna og þurfti að hætta í starfi snéri ég mér alfarið að prjónaskapnum sem hefur alltaf verið mín ástríða. Að prjóna fallegar flíkur veitir mér ómælda ánægju og gleði og í dag deili ég list minni með öðrum í gegnum handverkið mitt.