Guðríður ólst upp á Egilsstöðum og hefur prjónað frá því að hún var í grunnskóla en þar lærði hún fyrst að prjóna fyrsta sokkana. Mamma hennar kenndi henni síðan að prjóna peysur. Guðríður er Öryggissérfræðingur og starfar sjálfstætt í dag, hefur alltaf haft mikinn áhuga á hverslags handverki, hefur alltaf haft gaman af að prjóna og þarf alltaf að hafa eitthvað á prjónunum ef hún sest niður td við sjónvarp þá er prjónað. Einnig saumar hún töskur úr roði og skinni og fleira. Guðríður er félagsvera tekur þátt félagasamtökum og ferðast til að lifa lífinu,hitta fólk og hafa gaman og gefa af sér til samfélagsins.