Hjá mér er glasið alltaf hálffullt. Ég trúi því staðfastlega að það séu engin vandamál til, bara lausnir sem bíða eftir því að láta finna sig. Ég bý og er alin upp á Hellissandi í Snæfellsbæ með óspillta náttúruna allt í kring. Þaðan kemur líklega þessi þörf mín fyrir að njóta útsýnisins út um gluggann.
Ég er menntuð í hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði sem gefur mér áhugaverða sýn á heiminn. Hvort sem það eru stórpólitísk málefni eða skipulag á hversdagsdeginum.
Heimilislífið er líflegt og skemmtilegt! Ég er búin að vera gift sjómanninum mínum í 20 ár og saman eigum við þrjár dætur, tvær kisu-dívur og tíkina Bíbí sem heldur okkur á tánum. Þegar ég er ekki að pæla í skipulagi eða stjórnmálum finnurðu mig líklega með handverk í hönd, að sinna dýrum eða að safna góðri orku frá fólkinu í kringum mig.
Mér finnst gott að eiga en vont að vanta og á það sérstaklega við um góðar stundir og jákvætt fólk.