Helga Sveinsdóttir lærði fyrstu handtök við að fitja upp og gera lykkjur í handmennt í barnaskóla Keflavík. Ömmur hennar voru miklar hannyrðarkonur og fyrirmyndir í verkum og frágangi. Helga fluttist ung á Stöðvarfjörð og bjó þar í einn og hálfan áratug. Þá voru prjónarnir mundaðir á milli handtaka í frystihúsinu. Í hálfa öld hefur Helga þjónað fjölskyldu sinni og vandafólki við að prjóna margvísleg og misflókin verk. Vandvirkni og natni við hverja flík einkenna vinnubrögð Helgu. Nú þegar eftirlaunaárin eru hafin stundar Helga golf af kappi og hefur þess á milli prjónana við hendi. Prjónarnir veita henni hugarró og farveg fyrir iðjusemi og verkgleði.