Fara til efnis
Leit

Jónina Baldursdóttir

Ég er fædd og uppalin á Blönduósi. Langamma mín kenndi mér að prjóna þegar ég var 6 ára, en það var ekki fyrr en ég fór að eignast börn sem ég fór að prjóna af alvöru. Ég hef í nokkur ár verið að prjóna og selja heimferðasett, en árið 2024 fór ég að skrifa niður uppskriftirnar mínar og selja. Ég bý nú á Tenerife, stunda prjónaskapinn og er að hanna prjónauppskriftir. Einnig legg ég stund á hugleiðslu og gönguferðir, og lifi fyrir líðandi stund.