Ég heiti Rannveig Kristín Baldursdóttir og er 74 ára. Er með menntun í iðjuþjálfun og heilsuráðgjöf og hef unnið bæði hérlendis og erlendis við mitt fag. Er fæddur Reykvíkingur en hef búið víða og nú síðustu ár í Kópavogi. Byrjaði að prjóna um 10 ára aldur og ekki hætt því síðan. Auk þess lærði ég saum og myndlist og hef alltaf haft áhuga á allskonar handverki. Hef prjónað peysur á flesta í fjöskyldunni og saumaði líka mikið hér áður fyrr þó það hafi breyst síðustu árin, nú eru það aðallega viðgerðir. Það er yndislegt að setjast niður með prjónana, hlusta á góða sögu, í góðum félagsskap eða þegar horft er á sjónvarp. Er núna komin á eftirlaun og hef því rýmri tíma í prjónaskap og sérlega skemmtilegt að prjóna þessar fallegu barnapeysur fyrir Emil og Línu.