Fara til efnis
Leit

Rósa

Ég heiti Rósa og er fædd og uppalin á Akureyri. Ég er sjúkraliði að mennt og starfa á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Ég man fyrst eftir mér heima hjá ömmu minni í Sólvangi. Þar gat ég dundað mér tímunum saman og prjónað og saumað á dúkkurnar mínar, ég hef eiginlega ekki stoppað síðan. Prjón er fyrir mér bæði ástríða og gleði, og ég vona að peysan þín beri með sér hlýjuna og kærleikann sem ég legg í hvert einasta spor.