Fara til efnis
Leit

Þórdís Sólmundardóttir

Ég er fædd og uppalin á Selfossi. Mamma mín rak pylsuvagninn á Selfossi og ég var hennar hægri hönd mest allann tímann, nema þegar ég þurfti aðeins að fara skoða heiminn. En ég kom alltaf aftur. Við rákum Pylsuvagninn saman í 40 ár þar til við seldum hann 2024. Ég byrjaði fyrir alvöru að prjóna fyrir ca. 18 árum síðan. Ég fór með vinkonu mínum í bústað og var harðákveðin í að læra að prjóna vettlinga. Ég prjónaði 1 vettling (ekki par) alla helgina og var rosalega ánægð með mig. Það má eiginlega segja að ég hafi ekki stoppað síðan. Ég elska að setjast niður og prjóna fallegar flíkur og gert þær all nokkrar.