Gauja
Mitt nafn er Guðríður, en er ávallt kölluð Gauja. Segja má að ég kenndi sjálfri sér að fyrstu handtök að fitja upp og gera lykkjur í handmennt í Vogaskóla því erfiðlega gekk að kenna mér sem örfhentri. Móðir mín var mikl hannyrðarkona og fyrirmynd í verkum og frágangi. Ég nam við Húsmærðaskólann á Laugarvatni og öðlaðist þar enn meiri þekkingu á ýmiskonar handavinnu. Til marga ára var ég í bútasaumsklúbbi og sótti margvísleg námskeið því tengdu. Alltaf hef ég mundað prjónana á milli fjölbreyttra tegunda af handavinnuverkum. Í hálfa öld hef ég lagt mig fram að þjóna fjölskyldunni og vandafólki með að prjóna margvísleg og misflókin verk handa þeim. Ég legg vandvirkni og natni í vinnubrögðum við hverja flík. Þegar eftirlaunaárin tóku við eru prjónarnir enn meira við hendi. Prjónarnir veita mér hugarró og fargveg fyrir iðjusemi og verkgleði.
Næsti prjónari